Já það er rétt, í dag eru aðeins 7 dagar í brottför okkar af landinu. Flugið okkar fer klukkan 16:10 af Keflavíkurflugvelli laugardaginn 11. september 2010.
Við erum þegar búin að finna út hvar hostelið okkar er og hvernig við eigum að komast þangað frá flugvellinum.
Fyrst á dagskrá þegar við komum: Kaupa ostrukort. Það er gasalega sniðugt fyrirbæri sem gerir manni kleift að ferðast um í öllum neðanjarðarlestum og strætóum í London og sumum ofanjarðar lestum. Það kallast sem sagt "Oyster Card" upp á ensku, þess vegna höfum við Þóra ákveðið að kalla það ostrukort á íslensku.
Ég hafði samband við bæði Eimskip og Samskip um flutninga á dóti fyrir okkur. Báðir aðilarnir nánast hlógu að mér í tölvupóstinum sínum því að annar sagði mér að það kostaði 75 þúsund krónur að flytja 1 rúmmetra frá Íslandi til London (og okkar farmur er sennilegast bara 0.16 rúmmetrar) og hinn sagði mér hreinlega að tala bara við Póstinn, sem var upphaflega planið okkar hvort sem er. Þannig að Pósturinn er það þá.
Við erum búin að pakka niður öllu sem við ætlum ekki að hafa með, en við lentum í vandræðum við að koma því norður í Skagafjörð, þar sem hinir frábæru tengdaforeldrar mínir hafa verið svo yndislega að bjóða upp á geymslupláss í sumarbústaðnum sínum, því að við komum ekki öllu dótinu sem við ætluðum að hafa með fyrir í bílnum okkar. Þar koma þessir líka æðislegu tengdaforeldrar aftur inn í myndina því að þau eru á leið til útlanda og ætla að taka restina af dótinu okkar með sér norður þegar þau koma til baka.
Nú þurfum við svo bara að pakka niður tölvunni hans Óskars, taka skrifborðið hans í sundur, þrífa íbúðina, pakka almennilega niður í töskurnar okkar og komast á flugvöllinn!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Og ég get bara sagt núna: góða ferð Sunnefa og Óskar og njótið lifsins í London!
ReplyDelete