Ég virðist vera sá eini sem legg það á mig að blogga í þessu liði. Alla vega, nú er minna en þrjár vikur í að við flytjum út til London í sól og sumaryl, ekki ólíkt því sem er hér. Skrambi gott veður tel ég bara. Þannig að ég held að tími sé kominn á að deila með ykkur hvernig undirbúningi okkar gengur.
Um daginn hafði ég samband við flutningafyrirtæki varðandi að flytja tölvuna mína og meðfylgjandi dótarí. Ég verð eiginlega að segja að fólkið í Eimskip var alls ekki viðskiptavænt. Það benti mér bara á að skoða heimasíðuna þeirra, senda þeim póst um hversu mikið rúmmál við værum að flytja og bíða eftir tilboði. Við ákváðum reyndar fyrir löngu að láta TNT sendast með þetta þar sem vefsíðan þeirra hafði að minnsta kosti eitthvað sem teldist vera verðskrá. Ég vildi samt reyna að fá einhverja ágiskun á verð frá hinum en það er víst vel varið leyndó.
Ég reikna með að tölvan þurfi um eða undir einn rúmmetra í flutningum. Við ætlum þess vegna að fá einn þannig kassa, fylla hann af tölvu, tölvutengdu dóti, öðru dóti og fötum. Það mun gefa okkur meira pláss í töskunum okkar fyrir hluti eins og bækur o.fl. Auðvitað munum við hafa um helminginn af fötunum með okkur en það er gott að geta bara sent hinn helminginn út síðar.
Við höfum líka bókað gistingu á hosteli í Brixton sem heitir Hootananny. Hostelið lofar góðu, þó það hafi tekið þau þar viku í að svara einni spurningu sem ég vildi fá svarað áður en ég bókaði þar. En hostelið lofar jú mjög góðu. Það er ódýrt miðað við staðsetningu, hefur internet og hefur fengið góða dóma frá þeim sem hafa gist þar. Einnig er ágætt að þau hafi laust pláss fyrir okkur þrátt fyrir allt þetta.
Látum okkur sjá, hvað fleira? Í næstu viku förum við Sunnefa norður í síðasta sinn áður en við förum út. Við verðum þar í nokkra daga þannig að þeir sem vilja hitta okkur þar mega alveg hafa samband :)
Þeir sem vilja frekar hitta okkur hér í "borg óttans," eins og sumir kalla Reykjavíkina, þá verðum við heima alla vikuna áður en við flytjum.
Annars held ég að þetta sé bara nokkuð gott í bili. Við látum örugglega heyra í okkur aftur áður en við flytjum og eflaust höldum við áfram að blogga þegar við erum komin út til að láta ykkur vita hvernig okkur gengur að koma okkur fyrir. Við sjáumst síðar, ef ekki fyrr :)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment