Það er svo erfitt að gera flókna hluti eins og að flytja úr landi. Vissulega þarf að skipuleggja sig - finna dvalarstað og vinnu eða skóla, fá viðeigandi leyfi, læra að bjarga sér í þessu nýja landi - svo ekki sé minnst á allan fráganginn áður en farið er frá heimalandinu, eins og að ljúka ókláruðum málum, pakka öllu, og koma heila klabbinu út. Hinsvegar hafa empirískar rannsóknir sýnt að það sem flóknast er, og langlengstur tími fer í, er að svara spurningunni "Jæja! Hvernig gengur flutningurinn?" og skyldum fyrirspurnum. Ákvörðun var því tekin á aðalfundi útfararráðs (lesist: þegar ég kom við hjá þeim til að nota prentarann þeirra) að taka á þessum síendurteknu spurningum í eitt skipti fyrir öll og varpa ljósi þekkingarinnar inn í líf vina okkar, kunningja og ættmenna. Já, kæri lesandi, þetta blogg var stofnað svo þú, já ÞÚ, getir fylgst grannt með gangi mála, bæði hér heima og þegar út verður komið.
Sagan í stuttu máli:
Sunnefa er svo ofur tölvuklár að hún þarf að fara í skóla í úgglöndum til að læra eitthvað nýtt. Óskar er að verða svo sprenglærður í ensku að hann þarf að fara til alvöru enskumælandi lands til að geta æft sig meira í ensku (auk þess að vera jú viðhengið hennar Sunnefu). Þóra hefur verið íslenskur hálflendingur svo lengiað hún vill núna prófa að vera breskur hálflendingur, auk þess sem hún lætur sig dreyma um akademískt stórrán á guðfræðilegum viskubrunnum Bretlandseyja. Í september næstkomandi verða þessi plön því öll sameinuð í einum stórum flutningi til Lundúnaborgar.
En nú, hver er þá staðan í dag? heyri ég þig spyrja. Látum ekki standa á svörunum:
Það sem er komið:
-Sunnefa er komin inn í skólann sinn. Score! Byrjar þar í byrjun október.
-Þóra er búin að sækja um atvinnu, og er að bíða eftir svörum.
-Óskar og Sunnefa eru búin að pakka helling. Þóra býr eiginlega enn í kössum eftir síðasta flutning, og á hvort eð er engin húsgögn. Plús hvað henni leiðist að pakka.
-Óskar er búinn að finna RPG klúbb (forgangsröðun: We're doing it right :D )
-Gestalisti í gistingu í sófanum (sem við eigum ekki) í íbúðinni okkar (sem við höfum ekki fundið). Það fer að verða kominn drjúgur biðlisti, áhugasömum er bent á að skrá sig sem fyrst.
Það sem ekki er komið:
-Flugmiðar út (skrifast á Sunnefu og Þóru, Óskar vildi helst að við hefðum pantað miðana í kringum útskrift úr grunnskóla)
-Vinna handa Þóru og Óskari. Öll slík mál samt í vinnslu.
-Íbúð. Einnig í vinnslu, sjá næsta punkt.
Það sem við höfum lært:
-Hvernig leigumarkaðurinn virkar í London. Ætlum ekki að leigja neitt fyrr en við erum komin út og getum skoðað til að tryggja að við séum ekki að leigja einhvern rottukjallara hjá manni sem safnar brotnum postulínsdúkkum og kjötöxum og gengur aldrei í neinu nema rifnum kvenmannsnærbuxum.
-Það er fáránlega gagnlegt að vera með breskt vegabréf og eiga breska ættingja í London.
-Flutningsfyrirtæki eru grunsamlega treg við að segja manni hvað kostar að leigja horn í gámi. Veit ekki á gott.
=Þóra.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment