Wednesday, July 14, 2010

Jæja þá

Einhverra hluta vegna finnst mér ég knúinn til að leggja eitthvað til hér. Áður en ég byrja vil ég segja eitt: Sunnefa, ekki setja út á stafsetninguna mína eða málfar í þessu bloggi. Það er alveg óþarfi að benda fólki á hvað ég geri vitlaust.

Þá er best að segja eitthvað hér. Til að byrja með, þá er ég ekki heima. Reyndar ekki Sunnefa heldur. Eins og Sunnefa nefndi áður þá þurftum við að yfirgefa íbúðina tímabundið. Sjálfur er ég að gista hjá bróður mínum, Gísla, sem var nógu góður að taka á móti mér. Ég hafði borðtölvuna mína með mér og verslaði mér skrifborð og stól í góða hirðinum (reyni svo að losa mig við settið þegar ég fer héðan aftur).

Ég hef nýtt tíman til dundurs að einhverju leiti en einnig til að vinna í BA ritgerðinni minni. Það gengur nokkuð vel, segi ég bara. Ég hef lesið talsvert af efni og skrifað slatta líka. Þess ber að geta að lokaskil á ritgerðinni er 20. september. Glöggir lesendur geta séð að það er nokkuð á eftir deginum sem við flytjum út. Af þeim sökum stefni ég á að ljúka ritgerðinni minni ekki síðar en 5. september, meðtalinn yfirlestur tveggja prófessora í háskólanum.

Þar sem þetta er blogg um flutninga okkar til Lundúna, ætli sé þá ekki sniðugt að segja nokkur vel valin orð um það. Eins og Þóra nefndi þá hef ég skoðað spilaklúbba í þeirri borg svo við getum haldið áfram að stunda þetta annars frábæra hobbý. Ég hef ekki lagt mikla vinnu í að finna... tja, vinnu. Það eru nokkrar ástæður fyrir því. Í fyrsta lagi þá vil ég einbeita mér sem mest að ritgerðinni. Í öðru lagi þá höfum við ekki fundið húsnæði ennþá og tel ég að húsnæði eigi eftir að hafa mikil áhrif á hvar ég mun vinna. Ástæðan fyrir skorti á húsnæði er ekki sökum þess að við höfum ekki leitað heldur sökum þess að öllum íbúðum sem í boði eru skal tekið við strax.

Það er eitt og annað sem ég er spenntur fyrir að gera þegar út er komið. Mig langar gjarna að taka mig til einn daginn og skreppa til Oxford til að skoða mig um. Einnig langar mig gjarna að fara til Skotlands. Mig hefur lengi langað til Skotlands. Að lokum langar mig verulega að skoða mig um í nördabúðunum sem London býður upp á. Það eitt og sér á eftir að verða epískt :-D

No comments:

Post a Comment