Wednesday, July 14, 2010

Jæja þá

Einhverra hluta vegna finnst mér ég knúinn til að leggja eitthvað til hér. Áður en ég byrja vil ég segja eitt: Sunnefa, ekki setja út á stafsetninguna mína eða málfar í þessu bloggi. Það er alveg óþarfi að benda fólki á hvað ég geri vitlaust.

Þá er best að segja eitthvað hér. Til að byrja með, þá er ég ekki heima. Reyndar ekki Sunnefa heldur. Eins og Sunnefa nefndi áður þá þurftum við að yfirgefa íbúðina tímabundið. Sjálfur er ég að gista hjá bróður mínum, Gísla, sem var nógu góður að taka á móti mér. Ég hafði borðtölvuna mína með mér og verslaði mér skrifborð og stól í góða hirðinum (reyni svo að losa mig við settið þegar ég fer héðan aftur).

Ég hef nýtt tíman til dundurs að einhverju leiti en einnig til að vinna í BA ritgerðinni minni. Það gengur nokkuð vel, segi ég bara. Ég hef lesið talsvert af efni og skrifað slatta líka. Þess ber að geta að lokaskil á ritgerðinni er 20. september. Glöggir lesendur geta séð að það er nokkuð á eftir deginum sem við flytjum út. Af þeim sökum stefni ég á að ljúka ritgerðinni minni ekki síðar en 5. september, meðtalinn yfirlestur tveggja prófessora í háskólanum.

Þar sem þetta er blogg um flutninga okkar til Lundúna, ætli sé þá ekki sniðugt að segja nokkur vel valin orð um það. Eins og Þóra nefndi þá hef ég skoðað spilaklúbba í þeirri borg svo við getum haldið áfram að stunda þetta annars frábæra hobbý. Ég hef ekki lagt mikla vinnu í að finna... tja, vinnu. Það eru nokkrar ástæður fyrir því. Í fyrsta lagi þá vil ég einbeita mér sem mest að ritgerðinni. Í öðru lagi þá höfum við ekki fundið húsnæði ennþá og tel ég að húsnæði eigi eftir að hafa mikil áhrif á hvar ég mun vinna. Ástæðan fyrir skorti á húsnæði er ekki sökum þess að við höfum ekki leitað heldur sökum þess að öllum íbúðum sem í boði eru skal tekið við strax.

Það er eitt og annað sem ég er spenntur fyrir að gera þegar út er komið. Mig langar gjarna að taka mig til einn daginn og skreppa til Oxford til að skoða mig um. Einnig langar mig gjarna að fara til Skotlands. Mig hefur lengi langað til Skotlands. Að lokum langar mig verulega að skoða mig um í nördabúðunum sem London býður upp á. Það eitt og sér á eftir að verða epískt :-D

Sunday, July 11, 2010

Tveir mánuðir í brottför í dag!

Já, satt er það, við erum búin að kaupa flugmiðana til London og brottför er áætluð eftir um það bil tvo mánuði, fjórar klukkustundir og fimmtán mínutur.
Um leið og við vorum búin að kaupa miðana varð þetta allt mun meira raunverulegt í mínum huga og ég áttaði mig á hvað er í rauninni stutt í að við förum. Sem er frábært!
Við Þóra erum búnar að vera að tala um það í allt sumar hvort að við getum ekki bara farið á "morgun" en nú tölum við um hvort að 11. september geti ekki verið á "morgun". Öllum commentum um 11. september skal beint til Óskars.
Nú er allt í bið ástandi hjá okkur vegna þess að ég og Óskar þurftum tímabundið að yfirgefa íbúðina okkar. Eigandinn, sem býr í Noregi, kom í heimsókn til Íslands síðasta fimmtudag og vildi vera í íbúðinni á meðan. Þannig hefur þetta verið í mörg ár. Eina sem við getum gert núna er að bíða og afla okkur upplýsinga um London. Ég hef til dæmis verið að skoða farsímafyrirtæki og hostel til að vera á á meðan við leitum að íbúð.
Meira seinna,
Sunnefa

Monday, July 5, 2010

The Story So Far

Það er svo erfitt að gera flókna hluti eins og að flytja úr landi. Vissulega þarf að skipuleggja sig - finna dvalarstað og vinnu eða skóla, fá viðeigandi leyfi, læra að bjarga sér í þessu nýja landi - svo ekki sé minnst á allan fráganginn áður en farið er frá heimalandinu, eins og að ljúka ókláruðum málum, pakka öllu, og koma heila klabbinu út. Hinsvegar hafa empirískar rannsóknir sýnt að það sem flóknast er, og langlengstur tími fer í, er að svara spurningunni "Jæja! Hvernig gengur flutningurinn?" og skyldum fyrirspurnum. Ákvörðun var því tekin á aðalfundi útfararráðs (lesist: þegar ég kom við hjá þeim til að nota prentarann þeirra) að taka á þessum síendurteknu spurningum í eitt skipti fyrir öll og varpa ljósi þekkingarinnar inn í líf vina okkar, kunningja og ættmenna. Já, kæri lesandi, þetta blogg var stofnað svo þú, já ÞÚ, getir fylgst grannt með gangi mála, bæði hér heima og þegar út verður komið.

Sagan í stuttu máli:

Sunnefa er svo ofur tölvuklár að hún þarf að fara í skóla í úgglöndum til að læra eitthvað nýtt. Óskar er að verða svo sprenglærður í ensku að hann þarf að fara til alvöru enskumælandi lands til að geta æft sig meira í ensku (auk þess að vera jú viðhengið hennar Sunnefu). Þóra hefur verið íslenskur hálflendingur svo lengiað hún vill núna prófa að vera breskur hálflendingur, auk þess sem hún lætur sig dreyma um akademískt stórrán á guðfræðilegum viskubrunnum Bretlandseyja. Í september næstkomandi verða þessi plön því öll sameinuð í einum stórum flutningi til Lundúnaborgar.

En nú, hver er þá staðan í dag? heyri ég þig spyrja. Látum ekki standa á svörunum:

Það sem er komið:
-Sunnefa er komin inn í skólann sinn. Score! Byrjar þar í byrjun október.
-Þóra er búin að sækja um atvinnu, og er að bíða eftir svörum.
-Óskar og Sunnefa eru búin að pakka helling. Þóra býr eiginlega enn í kössum eftir síðasta flutning, og á hvort eð er engin húsgögn. Plús hvað henni leiðist að pakka.
-Óskar er búinn að finna RPG klúbb (forgangsröðun: We're doing it right :D )
-Gestalisti í gistingu í sófanum (sem við eigum ekki) í íbúðinni okkar (sem við höfum ekki fundið). Það fer að verða kominn drjúgur biðlisti, áhugasömum er bent á að skrá sig sem fyrst.

Það sem ekki er komið:
-Flugmiðar út (skrifast á Sunnefu og Þóru, Óskar vildi helst að við hefðum pantað miðana í kringum útskrift úr grunnskóla)
-Vinna handa Þóru og Óskari. Öll slík mál samt í vinnslu.
-Íbúð. Einnig í vinnslu, sjá næsta punkt.

Það sem við höfum lært:
-Hvernig leigumarkaðurinn virkar í London. Ætlum ekki að leigja neitt fyrr en við erum komin út og getum skoðað til að tryggja að við séum ekki að leigja einhvern rottukjallara hjá manni sem safnar brotnum postulínsdúkkum og kjötöxum og gengur aldrei í neinu nema rifnum kvenmannsnærbuxum.
-Það er fáránlega gagnlegt að vera með breskt vegabréf og eiga breska ættingja í London.
-Flutningsfyrirtæki eru grunsamlega treg við að segja manni hvað kostar að leigja horn í gámi. Veit ekki á gott.

=Þóra.