Tuesday, August 24, 2010

T-mínus 18 dagar

Ég virðist vera sá eini sem legg það á mig að blogga í þessu liði. Alla vega, nú er minna en þrjár vikur í að við flytjum út til London í sól og sumaryl, ekki ólíkt því sem er hér. Skrambi gott veður tel ég bara. Þannig að ég held að tími sé kominn á að deila með ykkur hvernig undirbúningi okkar gengur.

Um daginn hafði ég samband við flutningafyrirtæki varðandi að flytja tölvuna mína og meðfylgjandi dótarí. Ég verð eiginlega að segja að fólkið í Eimskip var alls ekki viðskiptavænt. Það benti mér bara á að skoða heimasíðuna þeirra, senda þeim póst um hversu mikið rúmmál við værum að flytja og bíða eftir tilboði. Við ákváðum reyndar fyrir löngu að láta TNT sendast með þetta þar sem vefsíðan þeirra hafði að minnsta kosti eitthvað sem teldist vera verðskrá. Ég vildi samt reyna að fá einhverja ágiskun á verð frá hinum en það er víst vel varið leyndó.

Ég reikna með að tölvan þurfi um eða undir einn rúmmetra í flutningum. Við ætlum þess vegna að fá einn þannig kassa, fylla hann af tölvu, tölvutengdu dóti, öðru dóti og fötum. Það mun gefa okkur meira pláss í töskunum okkar fyrir hluti eins og bækur o.fl. Auðvitað munum við hafa um helminginn af fötunum með okkur en það er gott að geta bara sent hinn helminginn út síðar.

Við höfum líka bókað gistingu á hosteli í Brixton sem heitir Hootananny. Hostelið lofar góðu, þó það hafi tekið þau þar viku í að svara einni spurningu sem ég vildi fá svarað áður en ég bókaði þar. En hostelið lofar jú mjög góðu. Það er ódýrt miðað við staðsetningu, hefur internet og hefur fengið góða dóma frá þeim sem hafa gist þar. Einnig er ágætt að þau hafi laust pláss fyrir okkur þrátt fyrir allt þetta.

Látum okkur sjá, hvað fleira? Í næstu viku förum við Sunnefa norður í síðasta sinn áður en við förum út. Við verðum þar í nokkra daga þannig að þeir sem vilja hitta okkur þar mega alveg hafa samband :)
Þeir sem vilja frekar hitta okkur hér í "borg óttans," eins og sumir kalla Reykjavíkina, þá verðum við heima alla vikuna áður en við flytjum.

Annars held ég að þetta sé bara nokkuð gott í bili. Við látum örugglega heyra í okkur aftur áður en við flytjum og eflaust höldum við áfram að blogga þegar við erum komin út til að láta ykkur vita hvernig okkur gengur að koma okkur fyrir. Við sjáumst síðar, ef ekki fyrr :)

Saturday, August 7, 2010

Og meira til

Ég er nú ekki mikill bloggari sjálfur þannig að ég hálfpartinn bjóst við að Sunnefa eða Þóra myndu segja frá þessu en ekki að þetta yrði geymt og gleymt nema ég myndi blogga eitthvað. Við þrjú hittumst síðastliðinn miðvikudagskvöld ásamt Gunnu og funduðum um komandi flutningar. Aðalmálið var eldhúsdótið okkar, sérstaklega pottar og pönnur, en við töluðum um margt annað líka.

Við ákváðum að skilja potta og pönnur eftir. Þessir hlutir eru þungir í flutningar og ekkert allt of dýrir úti ef við höldum okkur frá einhverjum ofurpottum og erum ekki að kaupa marga potta eða margar pönnur. Við ákváðum líka að skilja diska, skálar, hnífapör og glös eftir (nema um sérstök glös væri að ræða, eins og pepsiglasið mitt) af sömu ástæðu. Í rauninni ætlum við að skilja flest allt dótið í eldhúsinu eftir. Mínútugrillið okkar verður líklegast tekið með. Það er eitt mest notaða aparatið í eldhúsinu okkar og alveg æðislegt aparat.

Við komumst líka að því að við eigum nokkur borðspil sem við getum ekki tekið með okkur. Það lítur út fyrir að við munum einungis hafa eitt eða tvö með. Þ.e.a.s. þá munum við sennilegast hafa með okkur Star Trek Monopoly og svo ef til vill eitt annað en við sjáum til hvað það verður.

Orðabækur er eitt sem ég vil hafa til staðar. Ekki vegna þess að við skiljum ekki enskuna því við skiljum hana nokkuð vel vil ég meina. Aftur á móti hef ég gaman af orðabókum og get alveg skemmt mér við að glugga í þær af og til. Persónulega myndi ég vilja hafa allar orðabækurnar mínar með en þær eru kannski of margar og þungar til að ég geti það.

Það er alveg klárt að þvottagrindin okkar verður skilin eftir. Ef einhverjum vantar þvottagrind í seinni hluta september þá getur sá hin sami haft samband.

Við töluðum líka eitthvað um tölvuna mína. Hún verður sennilegast send út eftir að við höfum komið okkur fyrir í íbúð en við erum ennþá að skoða sendingamöguleika. Enn sem komið er virðist TNT koma sterklegast til greina þar sem þeir hafa verðskrá á síðunni þeirra. Við höfum ekki fundið neitt slíkt hjá öðrum fyrirtækjum. Svo er það spurning með prentaran en ég hallast að því að senda hann út með tölvunni.

Talandi um að senda hluti eftir á. Gunna er nú þegar byrjuð að skipuleggja heimsókn út og hefur boðist til að ferja eitthvað af dótinu okkar með. Þannig að þegar ég segi að við ætlum að hafa eitthvað með okkur út þá meina ég að það gæti komið seinna með ferðum ættingja og vina. Gunnu líst annars ágætlega á þetta. Hún getur notað plássið sem losnar í London undir dótið sem hún verslar þarna úti ;)
En já, ef einhverjir eru að hugsa um að kíkja til London í vetur þá væri ágætt ef hægt væri að ferja eitthvað með þeim. Bara að láta okkur vita.

Við Sunnefa fórum líka í Góða hirðinn og keyptum okkur tvær ferðatöskur á 1.400,- samtals. Ekkert risatöskur en ættu að duga. Ef ekki þá á ég ennþá íþróttatöskuna mína góðu sem hægt er að troða í.

Ég held að allt sem skipti máli sé komið hér inn sem og ýmislegt sem skipti engu máli. Sunnefa er ennþá nægilega stressuð fyrir okkur bæði þannig að ég get einbeitt mér að því að vera stressaður fyrir ritgerðina mína. Ég geri ráð fyrir að Þóra sé stressuð líka þó ég hafi ekki fengið að sjá það. Öll stressuð, öll kát. Segjum þetta gott í bili.

P.S.: Í dag eru akkúrat 5 vikur í að við flytjum út. 35 dagar í 11. september.