Monday, September 13, 2010

Komin!

Jebbs. Vid erum komin takk fyrir. Lentum a laugardagskvoldid eftir einkarutu uppa Keflavikurflugvoll (takk Reynir kallinnhennarmommuhennarSunnefu!), lestudumst inn i borgina tiltolulega vandkvaedalaust, og komum til Brixton tar sem eg (Thora) gisti hja fraenku minni, og tau hjonaleysin gista a mjog svolu gistiheimili fyrir ofan pub. Tar fa tau ad kynnast fullt af nyju folki, tar sem tau eru med einhverju random lidi i herbergi. Jei ...?
A sunnudaginn skodudum vid ibudir og kynntumst heimsins malgladasta leigusala (fodur- og sonarteymi, veit ekki hvor taladi meira, en eg helt a timabili ad vid tyrftum ad henda okkur ut um gluggann adur en vid hreinlega yrdum hungurmorda ad bida eftir ad teir haettu ad bladra). Vid erum eiginlega ad hugsa um ad taka fyrstu sem vid skodudum; ad visu var RIIISAkongulo i gardinum, en tar a moti kemur ad tad er harkollubud mjog nalaegt. Tannig ad tad kemur ut a slettu.
I dag erum vid buin ad hvila okkur, og eg er buin ad reyna ad brjota mer leid gegnum villtan frumskog bankakerfisins herna. Uff. Held samt ad eg se komin med leid i gegn nuna.
Bidst afsokunar a skorti a islenskum stofum, er i tolvu fraenku minnar.
Kvedja god,
Thora.

Saturday, September 4, 2010

Aaaaahhhh! OMG OMG OMG! 7 dagar í brottför!

Já það er rétt, í dag eru aðeins 7 dagar í brottför okkar af landinu. Flugið okkar fer klukkan 16:10 af Keflavíkurflugvelli laugardaginn 11. september 2010.
Við erum þegar búin að finna út hvar hostelið okkar er og hvernig við eigum að komast þangað frá flugvellinum.
Fyrst á dagskrá þegar við komum: Kaupa ostrukort. Það er gasalega sniðugt fyrirbæri sem gerir manni kleift að ferðast um í öllum neðanjarðarlestum og strætóum í London og sumum ofanjarðar lestum. Það kallast sem sagt "Oyster Card" upp á ensku, þess vegna höfum við Þóra ákveðið að kalla það ostrukort á íslensku.
Ég hafði samband við bæði Eimskip og Samskip um flutninga á dóti fyrir okkur. Báðir aðilarnir nánast hlógu að mér í tölvupóstinum sínum því að annar sagði mér að það kostaði 75 þúsund krónur að flytja 1 rúmmetra frá Íslandi til London (og okkar farmur er sennilegast bara 0.16 rúmmetrar) og hinn sagði mér hreinlega að tala bara við Póstinn, sem var upphaflega planið okkar hvort sem er. Þannig að Pósturinn er það þá.
Við erum búin að pakka niður öllu sem við ætlum ekki að hafa með, en við lentum í vandræðum við að koma því norður í Skagafjörð, þar sem hinir frábæru tengdaforeldrar mínir hafa verið svo yndislega að bjóða upp á geymslupláss í sumarbústaðnum sínum, því að við komum ekki öllu dótinu sem við ætluðum að hafa með fyrir í bílnum okkar. Þar koma þessir líka æðislegu tengdaforeldrar aftur inn í myndina því að þau eru á leið til útlanda og ætla að taka restina af dótinu okkar með sér norður þegar þau koma til baka.
Nú þurfum við svo bara að pakka niður tölvunni hans Óskars, taka skrifborðið hans í sundur, þrífa íbúðina, pakka almennilega niður í töskurnar okkar og komast á flugvöllinn!